Í síðustu viku tókst mér að búa til litla spurningakeppini í Kahoot sem ég lagði fyrir nemendur í dönsku í 7.bekk. Þeim fannst þetta mjög skemmtilegur tími og ákvað ég að nota þá jákvæðu bylgju sem það skapaði og virkja þau í einhverju sem þeim þætti áhugavert að gera. Ákvað að láta þau semja spurningar úr námsefni og búa til Kahoot sem myndi gilda inn í einkunnina þeirra, þetta fannst þeim spennandi.Nemendur fengu heimanám að lesa og glósa og vera tilbúin að búa til spurningar úr efninu í tíma. 40 mínútna kennslustund dugði skammt til að koma þessu inn í Kahoot, svo við þurftum að nota aðra kennslustund og enn er bara helmingurinn kominn inn, sé fram á að til þess að þetta náist fyrir vorið verði ég að sjá um að slá þetta inn fyrir þá sem eftir eru, til þess að þetta verði ekki algert flopp. Búin að læra það á þessu að betra væri að láta þau gera minni keppnir í minni hópum, til þess að fleiri geti unnið í þessu á sama tíma ;)
Er búin að vera að klóra mér í höfðinu síðan á Útspili þann 10.mars. Tókst þá einhvern veginn að búa til síðuna og setja inn mynd af mér á "about" en týndi "blog" færslunni minni og tókst ekki að finna út hvernig ég kæmist inn í það aftur. Tókst svo að finna út úr þessu áðan og finnst ég ótrúlega klár núna ! Best ég hætti á meðan sú tilfinning er ráðandi ;)
Á Útspili í dag sá ég allskonar möguleika til að draga tæknina inn í kennsluna mína. Kahoot var ég ekki að sjá í fyrsta skipti, en hafði ekki dottið í hug það sem einhver sagði þarna í dag, að láta nemendur búa til spurningarnar. Ég lærði líka aðeins á padlet og finnst það spennandi möguleiki, að geta látið nemendur "spjalla" á svona borði opnar örugglega leiðir til öðruvísi samskipta þeirra á milli og við mig sem kennara, en þær sem skólastofan hefur hingað til boðið upp á. Ég er þessar vikurnar að vinna með nemendum mínum í fyrsta Book creator verkefninu og hlakka til að sjá hvað kemur út úr því. Mig langar til að öðlast meira öryggi í þessum tæknimálum öllum, get klárað mig nokkurn veginn af öllum mínum daglegu persónulegu þörfum í þessum hlutum, en þarf að geta meira til að nýta það almennilega í kennslunni.
|
Hver er ég ?
Grunnskólakennari sem langar að læra meira um að nýta tækni í kennslu. Archives
June 2015
Categories |