Kahoot prófið sem var í vinnslu þegar ég skrifaði um daginn tókst með miklum ágætum. Nemendur stóðu sig vel og vinnan við að fara yfir og gefa einkunnir var mun fljótlegri en á "hefðbundinn" skriflegan hátt.
Það sem helst hefur truflað mig í því að vinna meira með ipadana, sem er það sem mig langar til að gera mikið meira af, er að tækin eru fá og margir áhugasamir kennarar í skólanum sem vilja nýta sér þennan möguleika í kennslu (sem er auðvitað frábært), þannig að tækin eru oft upptekin þegar ég hefði gjarnan viljað nýta þau.
Annað sem gerir þessa vinnu erfiðari en hún þarf að vera er það að ég hef ekki þráðlaust net á mínu kennslusvæði og þarf því að finna mér annað laust rými þar sem er netsamband til að láta krakkana vinna nettengda vinnu.
Svo ég tíundi líka það sem hefur verið jákvætt þá hafa upptökumöguleikarnir á ipadinum nýst mér. Bæði lásu nemendur texta inn á book creator og svo skipulagði ég munnlegr próf í dönsku þannig, að nemendur skrifuðu og æfðu texta sem þau svo tóku upp á video fyrir hvort annað. Ég safnaði síðan þeim upptökum saman og fór yfir í rólegheitum heima.
Af brasi mínu við að koma tölvunni á sjónvarpsskjáinn hérna heima er það að frétta að ég skilaði kaplinum sem ég var að vesenast með um daginn og keypti mér chromecast, það gekk ljómandi vel að tengja en kom í ljós að sjónvarpið er bilað, allt sem kemur í gegnum þessar tengingar birtist í fallegum bleikum tónum á skjánum ;)
Næst á dagskrá er að vinna upp áhorfið á Samspilsupptökunar af vefnámskeiðunum.