Eftir langt hlé af ýmsum persónulegum og fjölskyldulegum orsökum, er mig farið að langa til að gera meira í þessum tæknimálum. Gafst upp á að tengja tölvuna við sjónvarpið, myndin verður alltaf bleik og alveg sama hvað ég googla finn ég enga lausn á því. VGA í VGA, virðist ekki vera að virka. Bjarndís bauð fram aðstoð en ég gafst upp vegna þess að talvan mín þurfti á vírushreinsun og enduruppsetningu að halda, þannig að hún var of hægvirk. Í næstu viku verður "stór" Kahoot keppni í dönskunni, gildir 5% af heildeinkunn annarinnar hjá nemendum. Er orðin spennt að fá þráðlausa nettengingu í stofuna mína, þannig að notkun ipadanna verði einfaldari, vesen að þurfa að færa kennsluna í aðra stofu til að komast á net. Langar að geta látið nemendur í öllum greinum nýta ipadana meira í upplýsinga og verkefnaleit, En jæja, ég fann síðuna, tókst að ramba á lykilorðið og er búin að skrifa smá vangaveltur, vonandi eitthvað meira spennandi næst.
|
Hver er ég ?
Grunnskólakennari sem langar að læra meira um að nýta tækni í kennslu. Archives
June 2015
Categories |